fimmtudagur, ágúst 17, 2006

See ya .... :)


Jæja, þá ætla ég að prufa enn einn áfangastaðinn ;) Getur þó vel verið að ég snúi aftur - sjáum til hvernig nýji staðurinn fer með mig :)

---> http://mightytinn.bloggar.is

See you on the other site!

kveðja,

Tinns

Ps. Takk æðislega fyrir öll kommentin elskurnar, alltaf gaman að fá sollis! ;)

miðvikudagur, ágúst 02, 2006

Loksins


Góðan daginn góðir hálsar

Þá er mar bara að fara til Benidorm Á MORGUN!!!!!!!! Þetta verður geðveikt held ég bara ...sólin, ströndin, sundlaugin, mojito, bjór...bara u name it ;)

Mikið sem ég á eftir að gera samt....pakka öllu..redda gjaldeyri...þvo smá.... En það reddast


Ég vildi s.s. bara aðins monta mig...en þá er ég farin að vinna aftur ;) ..og svo í SÓLINA!!! :D

Bæjó
Tinns

þriðjudagur, júlí 18, 2006

Finally...

Jæja kids...

Þá er maður búinn að reyna 3var að blogga og ekkert gengur (hendi kannski inn þeim bloggum seinna ef þetta virkar, en kannski ekkert svo spennandi að lesa eldgömul blogg :S dunno!)

Lítið að frétta úr þessu dags daglega lífi sosum. Mar bara vinnur eins og hestur – og ekkert spennandi gerist. Nema jú ég fékk að fara vestur í Djúpið okkar um síðustu helgi – Loksins!! Langþráð ferð og stóð aldeilis undir sér. Vantar reyndar að fara aftur í slökunarferð því þessi var nú allt annað en það. Vorum 14 manns held ég: ég, mamma, pabbi, Halla, Gústi, Hafþór Hrafn, Kristján Hrafn, Berglind, Svavar, Helga Dís, Sibba og Jóhann Egill = já eða 12. Hrikaleg stemmning alla helgina og dýrindis sól á sunnudeginum. Brann meira segja (sem var ekkert allt of spennandi, ennþá að flagna núna :( ).

Svo um daginn spurði Björg mig hvort ég vildi koma með henni og systur sinni til BENIDORM!!! Jahá ég hélt það nú :D:D:D Leit nú reyndar lengi vel út fyrir að ég fengi ekki að fara þar sem ég á nú víst að vera að vinna þessa daga (3.-10. ágúst)....en loks kom Þór með þá snilldarhugmynd að hann mundi sko barasta vinna fyrir mig takk fyrir góðan daginn hahaha..... Ég var doldið kvíðin við að bera þetta upp við yfirmenn mína en viti menn Eygló (....best í heimi!! ;) ) leist bara vel á þetta. Hringdi svo í Sigrúnu sem verður þá að vinna með honum og mér heyrðist hún bara vera spennt að fá sona sætan og ungan strák...spurði hvort ég þorði þessu?!?! Hahaha...

En já, eins og ég segi, þá er ég að fara til BENIDORM – vá ..eruði að trúa þessu?? Ekki ég eiginlega varla - vííííííí!

Svo er útlit fyrir að við Þór troðum okkur með í árshátíðarferð til Madrid með mömmu, pabba, Magga og Árný. Það ætti að vera gómsætt líka :) jeijjj....

Annars er ég algjörlega að sofna í vinnunni – nákvæmlega ekki neitt að gera, sérstaklega ekki eftir 16 þegar ég er orðin ein (ein frá 16-18). Og ég skal alveg segja ykkur að það er ekki gaman í vinnunni þegar lítið er að gera....bara alls ekki. Mar hefði haldið að þá væri maður heppinn...smá break... En nei, dagurinn er hrikalega lengi að líða og ég verð svo þreytt að ég rugla bara og bulla í kúnnunum. Ótrúlega utan við mig....

Jæja, held þetta sé alveg löngu komið gott í bili og vonandi tekst mér að posta þessu í þetta skiptið ;)

Bæjó
Tinns

miðvikudagur, maí 24, 2006

Shiiii.....



Vá!!! hvað lífið er erfitt ...vildi bara minnast á það

kveðja,

T

mánudagur, maí 15, 2006

Long time, no see!

Jæja...prófin búin ..en ný próf taka við - say no more ;) :(...

Búið að vera mikið í gangi undanfarnar vikur....e-r jákvæðir punktar en þó flestir neikvæðir.

En..það þýðir víst ekki að velta sér upp úr því öllu saman - life goes on! eins og e-r sagði e-n tíma tíhí....enda mínar ófarnir engan veginn þær verstu sem til eru. Samt skrítið hvað manni tekst alltaf að gleyma sér og setja alltaf samasem-merki á milli árángurs á prófum og hversu góð eða slæm (eða heimsk og vitlaus?) manneskja maður er. Ótrúlega erfitt að ná sér upp úr þessu finnst mér og hætta að hugsa um hvað aðrir munu halda/hugsa/finnast um mann...

Oh well ... ;)

Gerið ekki ráð fyrir neinum gloríum næstu vikurnar í bloggmálum....en aldrei að vita nema mar taki sér pásu sona við og við (no promises though!)

See ya píps :D
Tinns

ps. Geriði allt sem þið getið til að sýna fólki sem ykkur þykir vænt um, hversu mikið ykkur þykir vænt um það!!! (cause you never know when you´re gonna see them again!).
Þrátt fyrir að vera væmin, þá er þessi vísa víst aldrei of oft kveðin....

fimmtudagur, mars 16, 2006

Enn eitt æðið darlings...var að spá...ef ég set þetta bara hér, er ég þá ekki bara basically covered - you´re all beautiful my dears! haha....

YOU VE BEEN HIT BY THE

|^^^^^^^^^^^^|
|BEAUTIFUL truck | |""";.., ___.
|_..._...______===|= _|__|..., ] |
"(@ ) (@ )""""*|(@ )(@ )*****(@

ONCE YOU VE BEEN HIT, YOU HAVE TO HIT 8 Beautiful People IF YOU GET HIT AGAIN YOU LL KNOW YOU RE REALLY BEAUTIFUL! IF YOU BRAKE THE CHAIN, YOU LL BE CURSED WITH UGLYNESS FOR 10 YEARS SO PASS IT HIT WHO EVER YOU THINK IS BEAUTIFUL!

ps. ekkert að frétta= hence the no blogging ;)

see ya
Tinns

mánudagur, mars 06, 2006

just checkin in....




Bara láta vita að það er ekki mér að kenna þetta bloggleysi.... Blogger var bilað þarna e-ð á tímabili svo bloggið fór alveg út um þúfur ...svo bara gleymdi ég mér..

En ég blogga e-ð skemmtó bráðum - t.d. Árshátíð á föstudagin!! víííííííííí......

(ps. ef e-r er ekki að fara á HR-árshátíð en er samt í HR og á KB-BANKA KORT! þá má hann láta mig vita ;) því þá fæ ég 1000 kall í afslátt híhí...)

See you later aligator

Tinns